2011 IceSave

Aðdragandi: Forseti Íslands synjaði lögunum um IceSave, stundum nefnt IceSave III staðfestingar og fór þá málið í þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var 9. apríl 2011. Um var að ræða lög um heimild til handa fjármálaráðherra til að ábyrgjast lán til Tryggingasjóðs innstæðueigenda til greiðslu á skuldbindingum hans vegna IceSave innistæðureikninga Landsbankans.

Úrslit urðu þau að lögin voru felld með nokkrum meirihluta. Lögin voru því felld úr gildi. Niðurstaðan hafði engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og sat ríkisstjórnin áfram.

Úrslit

Atkvæði %
69.462 40,23%
Nei 103.207 59,77%
Gild atkvæði 172.669 100,00%
Auðir seðlar 2.039 1,16%
Ógild atkvæði 406 0,23%
Samtals 175.114
Kjörsókn 75,34%
Á kjörskrá 232.422

Skipting atkvæða

Úrslit eftir kjördæmum

Auðir seðlar eftir kjördæmum

Kosningaþátttaka eftir kjördæmum

Heimild: Vefur Landskjörstjórnar og vefur mbl.is.