Sveitarfélagið Skagaströnd 2022

Í sveitarstjórnarkosningunum 2018 hlaut Skagastrandarlistinn 3 sveitarstjórnarmenn og hreinan meiri hluta en Ð-listinn Við öll 2 sveitarstjórnarmenn.

Einn listi kom fram og var hann sjálfkjörinn. Efstu fimm á listanum voru því kjörnir í sveitarstjórn og næstu fimm varamenn þeirra.

Skagastrandarlistinn
1. Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri og sveitarstjórnarmaður
2. Erla  María Lárusdóttir innanhússhönnuður
3. Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir nemi í uppeldis- og menntunarfræði
4. Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir ferðamálafræðingur
5. Péturína Laufey Jakobsdóttir skrifstofustjóri og sveitarstjórnarmaður
6. Arnar Ólafur Viggósson forstöðumaður
7. Ragnar Már Björnsson iðnaðarmaður
8. Ástrós Elíasdóttir atvinnuráðgjafi
9. Jón Ólafur Sigurjónsson slökkviliðsstjóri
10. Adolf Hjörvar Berndsen framkvæmdastjóri