Landið 1916

Heildarúrslit eftir stjórnmálaflokkum:

Atkvæði Hlutfall Þingmenn
Heimastjórnarflokkur 6.528 43,00% 12
Sjálfstæðisflokkur 1.014 6,68% 3
Sjálfstæðisfl.langsum 1.478 9,73% 3
Sjálfstæðisfl.þversum 2.097 13,81% 7
Bændaflokkur 1.173 7,73% 5
Óháðir bændur 554 3,65% 1
Alþýðuflokkur 904 5,95% 1
Utan flokka 1.435 9,45% 2
Samtals: 15.182 100,00% 34

Skipting milli stjórnmálaflokka var ekki mjög skýr en hér er stuðst við merkingar frambjóðenda í Kosningaskýrslum Hagstofunnar fyrir alþingiskosningarnar 1916. Í þeim kjördæmum þar sem var sjálfkjörið eru allir sem voru á kjörskrá taldir sem atkvæði viðkomandi flokks.

Í desember 1916 var Framsóknarflokkurinn stofnaður af fimm þingmönnum Bændaflokksins, tveimur þingmönnum Óháðra bænda og Þorsteini M. Jónssyni sem talinn hafði verið til Sjálfstæðisflokks.

Árið 1916 voru einnig landskjörskosningar þar sem kosnir voru sex þingmenn af listum og landið eitt kjördæmi. Þar hlaut Heimastjórnarflokkurinn 3 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur þversum 2 þingmenn og óháðir bændur 1 þingmann. Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur langsum og Bændaflokkur hlutu ekki kjörinn mann.

Kjörnir þingmenn eftir stjórnmálaflokkum

Heimastjórnarflokkur: Hannes Hafstein, Guðjón Guðlaugsson og Guðmundur Björnsson landskjörnir, Jón Magnússon Reykjavík, Halldór Steinsson Snæfellsnessýslu, Matthías Ólafsson Vestur Ísafjarðarsýslu, Þórarinn Jónsson Húnavatnssýsla, Stefán Stefánsson Eyjafjarðarsýslu, Magnús Kristjánsson Akureyri, Pétur Jónsson Suður Þingeyjarsýslu, Jóhannes Jóhannesson Seyðisfirði, Björn Stefánsson Suður Múlasýslu, Eggert Pálsson og Einar Jónsson Rangárvallasýslu og Sigurður Sigurðarson Árnessýslu.

Sjálfstæðisflokkur: Magnús Torfason Ísafirði, Þorsteinn M. Jónsson Norður Múlasýslu og Karl Einarsson Vestmannaeyjum.

Sjálfstæðisflokkur langsum: Magnús Pétursson Strandasýsla, Gísli Sveinsson Vestur Skaftafellssýsla og Einar Arnórsson Árnessýslu.

Sjálfstæðisflokkur þversum: Sigurður Eggerz og Hjörtur Snorrason landskjörnir, Björn Kristjánsson og Kristinn Daníelsson Gullbringu- og Kjósarsýslu, Pétur Ottesen Borgarfjarðarsýslu, Pétur Þórðarson Mýrasýslu, Bjarni Jónsson Dalasýslu, Hákon J. Kristófersson Barðastrandasýslu og Benedikt Sveinsson Norður Þingeyjarsýslu.

Bændaflokkur: Guðmundur Ólafsson Húnavatnssýslu, Ólafur Briem Skagafjarðarsýslu, Einar Árnason Eyjafjarðarsýslu, Jón Jónsson Norður Múlasýslu og Þorleifur Jónsson Austur Skaftafellssýslu.

Óháðir bændur: Sigurður Jónsson landskjörinn og Sveinn Ólafsson Suður Múlasýslu.

Alþýðuflokkur: Jörundur Brynjólfsson Reykjavík.

Utan flokka: Skúli S. Thoroddsen Norður Ísafjarðarsýslu og Magnús Guðmundsson Skagafjarðarsýslu.

Breytingar á kjörtímabilinu:

Skúli S. Thoroddsen þingmaður Norður Ísafjarðarsýslu lést í maí 1916. Sigurður Stefánsson var kjörinn í hans stað 1917.

Hannes Hafstein tók síðast sæti á þingi 1917. Sigurður Friðjónsson tók sæti hans og sat til 1922.

Heimild: Kosningaskýrslur Hagstofu Íslands, vefur Alþingis og Morgunblaðið 16.12.1966.