Landið 1953

Úrslit

1953 Atkvæði Hlutfall Þingm.
Sjálfstæðisflokkur 28.738 37,12% 21
Framsóknarflokkur 16.959 21,91% 16
Sósíalistaflokkur 12.422 16,05% 7
Alþýðuflokkur 12.093 15,62% 6
Þjóðvarnarflokkur 4.667 6,03% 2
Lýðveldisflokkur 2.531 3,27% 0
77.410 100,00% 52

Sjálfstæðisflokkur bætti við sig 2 þingsætum og Þjóðvarnarflokkur, sem bauð fram í fyrsta skipti, hlaut 2 þingsæti. Framsóknarflokkurinn tapaði 1 þingsæti, Alþýðuflokkurinn tapaði 1 þingsæti og Sósíalistaflokkurinn 2 þingsætum.

Þingmenn eftir stjórnmálaflokkum:

Sjálfstæðisflokkur(21): Bjarni Benediktsson, Björn Ólafsson, Jóhann Hafstein og Gunnar Thoroddsen Reykjavík, Ólafur Thors Gullbringu- og Kjósarsýslu, Ingólfur Flyenring Hafnarfirði, Pétur Ottesen Borgarfjarðarsýslu, Sigurður Ágústsson Snæfellsnessýslu, Gísli Jónsson Barðastrandasýslu, Kjartan J. Jóhannsson Ísafirði, Sigurður Bjarnason Norður Ísafjarðarsýslu, Jón Pálmason Austur Húnavatnssýslu, Jón Sigurðsson Skagafjarðarsýslu, Einar Ingimundarson Siglufirði, Magnús Jónsson Eyjafjarðasýslu, Jónas G. Rafnar Akureyri, Lárus Jóhannesson Seyðisfirði, Jón Kjartansson Vestur Skaftafellssýslu, Jóhann Þ. Jósefsson Vestmannaeyjum, Ingólfur Jónsson Rangárvallasýslu og Sigurður Óli Ólason Árnessýslu.

Framsóknarflokkur(16): Andrés Eyjólfsson Mýrasýslu, Ásgeir Bjarnason Dalasýslu, Eiríkur Þorsteinsson Vestur Ísafjarðarsýslu, Hermann Jónasson Strandasýslu, Skúli Guðmundsson Vestur Húnavatnssýslu, Steingrímur Steinþórsson Skagafjarðarsýslu, Bernharð Stefánsson Eyjafjarðarsýslu, Karl Kristjánsson Suður Þingeyjarsýslu, Gísli Guðmundsson Norður Þingeyjarsýslu, Páll Zophoníasson og Halldór Ásgrímsson Norður Múlasýslu, Eysteinn Jónsson og Vilhjálmur Hjálmarsson Suður Múlasýslu, Páll Þorsteinsson Austur Skaftafellssýslu, Helgi Jónasson Rangárvallasýslu og Jörundur Brynjólfsson Árnessýslu.

Sósíalistaflokkur(7): Einar Olgeirsson, Sigurður Guðnason og Brynjólfur Bjarnason(u) Reykjavík, Finnbogi R. Valdimarsson(u) Gullbringu- og Kjósarsýslu, Gunnar Jóhannsson Siglufirði, Lúðvík Jósepsson(u) Suður Múlasýslu og Karl Guðjónsson(u) Vestmannaeyjum.

Alþýðuflokkur(6): Haraldur Guðmundsson og Gylfi Þ. Gíslason(u) Reykjavík, Guðmundur Í. Guðmundsson(u) Gullbringu- og Kjósarsýslu, Emil Jónsson(u) Hafnarfirði, Hannibal Valdimarsson(u) Ísafirði og Eggert G. Þorsteinsson(u) Seyðisfirði.

Þjóðvarnarflokkur(2): Gils Guðmundsson og Bergur Sigurbjörnsson(u) Reykjavík.

Heimildir: Kosningaskýrslur Hagstofu Íslands og vefur Alþingis.